<< FyrriFróðleikurNæsta >>
<< Fyrri

Safnasvæðið - Stúkuhús

Næsta >>

 

Vissir þú að....árið 1948 keypti Stúkan Akurblóm Stúkuhúsið svokallaða og breytti því í samkomuhús fyrir I.O.G.T. og var það vígt árið 1950. Húsið var nýtt fyrir góðtemplararegluna, önnur félagasamtök höfðu afnot af húsinu og fundir bæjarstjórnar voru haldnir þar um tíma. Árið 2003 var Stúkuhúsið flutt á Safnasvæðið að Görðum og hefur verið endurgert að utan sem innan.