<< FyrriHéðan og þaðanNæsta >>
<< Fyrri

Gamli Sparisjóðurinn

Næsta >>

 

Gamli sparisjóðurinn í Borgarnesi dregur nafn sitt af því að húsið var að hluta til byggt af Sparisjóði Mýrasýslu á sínum tíma, en það er reist um 1920. Á efri hæðinni bjó Magnús Á. Jónsson þáverandi sparisjóðsstjóri ásamt fjölskyldu sinni. Afgreiðsla og aðsetur sparisjóðsins var hins vegar á neðri hæðinni. Húsið er teiknað af Guðjóni Samúelsyni arkitekt. Nú er það í einkaeigu en sparisjóðsafgreiðslan fluttist úr því á 7.áratug síðustu aldar.