| << Fyrri | Héðan og þaðan | Næsta >> |
![]() | ||
| << Fyrri | Álftaneskirkja | Næsta >> |
Álftaness á Mýrum er m.a. getið í Egilssögu og fræg er sagan af ferð Egils þangað þegar hann var þriggja vetra. Jörðin er landnámsjörð og er landið víðáttumikið. Í Álftanesi var Maríukirkja og er hennar fyrst getið um 1200 í kirknaskrá Páls biskups Jónssonar. Þar er nú útkirkja frá Borg og hefur verið svo um aldir. Núverandi kirkja var byggð 1904 og var mikið endurnýjuð árið 1997. Altaristaflan er eftir Sigurð Guðmundsson, máluð eftir upprisumynd danska málarans Wegener. | ||