| Héðan og þaðan | Næsta >> | |
![]() | ||
Gamli bærinn á Húsafelli | Næsta >> | |
Ástríður Þorsteinsdóttir, ekkja Þorsteins Magnússonar, lét byggja húsið árið 1908. Eftir að Kaldadalsvegur var ruddur og gerður bílfær 1929 var Húsafell í alfaraleið. Svo gestkvæmt var að Þorsteinn, sonur Ástríðar og Þorsteins, hafði fast starfsfólk í vinnu við að taka á móti fólki. Sumir stoppuðu stutt við og aðrir lengur, t.d. var Ásgrímur Jónsson málari sérstakur auðfúsugestur, en hann dvaldist á bænum sumar eftir sumar. Árið 1996 lét Kristleifur Þorsteinsson ferðaþjónustubóndi á Húsafelli gera þetta sögufræga hús upp, en þá hafði ekki verið búið í því um þriggja áratuga skeið. Kappkostað var að láta það halda sínu upprunalega útliti. Í dag er gamli bærinn nýttur til þjónustu fyrir ferðamenn. | ||